fimmtudagur, apríl 10, 2003

Mér leiðist. Mjög mikið. Svo mikið reyndar að ég er alvarlega að pæla í að horfa á leiðarljós eða jafnvel eitthvað á stöð tvö ~ ruglað! Nei annars, ég leggst ekki svo lágt. Hvað á ég að geeeeeera????? Ég á víst að vera skapandi strumpurinn! Samt get ég ekki fundið upp á neinu skapandi að gera! Fuff, strumpurinn minn stendur sig ekki! Ætli hann sé ekki bara að hvíla sig svo ég geti verið uppá mitt hressasta í kvöld í sundi og öskrað sem allra mest í rennibrautinni :-P
Ég hef ákveðið að segja sem fæstum frá þessu bloggveseni mínu, sennilega af ótta við að fólk gæti komist að því hversu kexrugluð ég get verið. En.....ætli ég geti nú falið það mikið lengur hvort eð er....... Fólk verður bara að sætta sig við kexruglleikann minn því innst inni er strumpurinn minn ágætis náungi......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

|