föstudagur, apríl 11, 2003

í dag er föstudagur! Ég er svöng því ég borðaði engan morgunmat. En þetta stendur allt til bóta, því ég er nefnilega með peninga í vasanum. Annars er lítið af mér að frétta nema að það er að koma PÁSKAFRÍ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! og það er mjög jákvætt. Hinsvegar, í neikvæðari kantinum, var mamma á foreldrafundi í gær. Ógn og skelfing! Hún kom hem yfirfull af yndislegum hugmyndum um hvernig foreldri á að hegða sér, til dæmis: foreldri skal ávallt sitja yfir barni sínu, alla tíma sólarhrings, og nöldra í því um hvernig viðkomandi vesaling er best að læra! Hún kom heim eins og hún hefði fengið hina mestu uppljómun, og sagðist vilja taka virkari þátt í námi mínu! Ég er öskureið út í Bessí og Mörtu! Þær stóðu fyrir þessu öllu! Með glærur og allt saman sem þær létu foreldrana skrifa upp af! Mér hefur ekki enn tekist að koma móður minni í skilning um að ég er eldri en 10 ára, og get því upp að vissu marki tekið ábyrgð á eigin námi. Æ neinei, ég er að fara í páskafrí og ætla að vera ánægð (fyrir utan það að allt fríið fer í það að nördast yfir bókum, þökk sé kennaraandskotunum)! Æi, þetta verður bráðum búið

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

|