ó, vikan
2 próf í næstu viku, ein ritgerð og hálf íslendingasaga. Vinna á laugardaginn, skírn á sunnudagin, 2 vikur í frumsýningu, 1 og hálf vika í það að leikskrá þurfi að fara í prentun, komin með flensu sem dregur úr mér allan kraft en er ekki nógu mikil til að ég geti tekið mér frí. Mamma þvoði dökka liti í dag á of miklum hita svo flestallt skemmdist. 90% af fataskápnum mínum samanstendur af dökkum litum. Uppáhaldspeysan mín eyðilagðist og hugleiksbolurinn er orðinn grár.
jæja, þá er ekki annað en taugaáfall eða kókaín
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home