föstudagur, júlí 29, 2005

ohhh

Vá, ég er búin að skrifa alveg 3 ótrúlega glataðar og vonlausar færslur sem ég hef hætt við að birta, sökum almenns leirburðs og gæðaleysis. Hver vill heyra um hrakfarir 16 ára stúlku sem hatar að vera ástfangin og vill bara elska hesta eða ritverk Paolo Coelho eða eitthvað, og lifa hamingjusöm til æfiloka.
Ég er hætt við, ég ætla bara að skrifa aðra stutta punchline-lausa færslu af því að allt langa bókfellið í hausnum á mér er undirlagt af væmni og aumingjaskap.

4 Comments:

At 6:44 f.h., Blogger María Rut said...

Núna þætti mér nunnuklausturs hugmyndin okkar ekkert afleit.

 
At 10:48 f.h., Blogger Klara said...

það er rétt!

 
At 3:06 e.h., Blogger Drekafluga said...

Ah, já. Þetta tímabil. Stemmning.

 
At 8:48 e.h., Blogger Anna Margrét said...

Allir hafa upplifað svona tilfelli...
...ég blogga bara samt ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home

|