þriðjudagur, apríl 19, 2005

...framhald

Biðst afsökunar á síðustu. Hún var skrifuð í biturð og einmanaleika.

Kvöldið endaði svo ágætlega. Einar brosti við öllu og öllum og var hress að vanda, við borðuðum piparmyntu ístertu sem var gómsæt og svo rústaði mamma pleisinu þegar hún tróð upp við píanóundirleik og söng klúrar breskar drykkjuvísur. Af öllum vísum. Af öllum konum. Vegir hennar eru órannsakanlegir.

2 Comments:

At 9:03 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já, móðir þín er gullmoli :D Mig langar líka að syngja klúrar breskar drykkjuvísur. Spurning um að við förum að syngja aftur í sundi saman...nema bara fyrir annan markhóp í þetta skiptið ;)

 
At 5:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mamma þín er skondin... Einar er krútt... Þú ert kjáni... Ég er... Uppiskroppa með lýsingarorð...

Vá þetta eru margir punktar!

 

Skrifa ummæli

<< Home

|