laugardagur, maí 13, 2006

Mömmubrandarar og Ástralir



Eins og hefð gerir ráð fyrir:

Mamma: Hvar er helvítis ryksuguhausinn?
Ég: Hættu að segja svona ljótt
Mamma: Ég var ekkert að segja ljótt
Ég: Jú víst, þú segir ALLTAF ljótt
Mamma: Ég segi ekker alltaf ljótt. Silvía Nótt segir alltaf ljótt!
Ég: Haha, rím
Mamma: (muldrar) Fokking þetta og fokking hitt.

Takið vel eftir því þetta var síðasta mömmubloggið sem ég skrifa. Ég þarf virkilega að fara að einbeita mér að öðrum hugðarefnum.

Að því sögðu: Doddi skrifaði nýlega færslu um kvenkynið sem fékk mann næstum því til að vilja spila "Þér konur" á hæsta styrk, spreyja á mig svona ilmvatni og reykja mjóa ilmandi sígarettu úti á svölum á undirkjólnum einum klæða, smápiltum hverfisins til ánægju og yndisauka. Þar sem, hinsvegar, "Þér konur" vekur hjá mér óneitanlega velgju (reyndar stolti blandna, en samt velgju), ég fæ mjög svo órómantískt astmakast af sígarettureyk og lít ekki beint út eins og Brigitte Bardot (þótt Ólöf hafi nú einu sinni sagt það, líklega til að gleðja mig) á náttkjól þá ætla ég ekki að gera neitt af þessum hlutum, heldur eitthvað annað.

Nú er ég búin að segja ykkur hvað ég ætla ekki að gera. Eða svona, já... listinn gæti svosem alveg verið lengri. Líka listinn yfir það hvað ég ætti að vera að gera en er ekki að gera, hann er líka frekar langur, sem og listinn yfir það sem ég ætti ekki að gera, en enda sennilega með að gera. Þessi bloggfærsla er alveg örugglega á topp fimm yfir það, en próf fá mann til að vera asnalegur. Strákar líka, sérstaklega strákarnir sem fá mann til að blaðra út í eitt og sjá svo eftir hverju orði. Ég er með einn svoleiðis á sjóndeildarhringnum, en svo fer sem fer, kannski vakna ég einn morguninn með kúl, það er aldrei að vita.

(einn tveir og skrifa aftur í skipulagðri orðaröð:)

En aftur að kvenkyninu. Óháð öllu því sem Doddi talaði um í sambandi við kosti stelpna, þá er einn þáttur sem er óhrekjanlegur, og hann gleymdi að nefna: Allar stelpur breytast annaðhvort í a) mömmu sína eða b) hinn öfgann á skalanum eins konar andmömmusína. Bæði er jafnslæmt. Stelpur eru nefnilega klikkaðar upp til hópa, þær hætta ekkert að vera það þótt þær þykist hafa þroskast og eru komnar með bílpróf og eitthvað.

Þar sem mamma mín er af mörgum álitin vera í klikkaðri kantinum, jafnvel af "stelpu" að vera (hún kallar meindýraeyðinn í daglegu tali "the Mein Kampf") , hef ég því komið með krók móti bragði. Ég er ekki að verða eins og móðir mín, ónei! Ég er orðin að móður móður minnar. Húha! Nú skamma ég hana fyrir að blóta (sjá að ofan), spyr hana áhyggjufull hvort hún hafi ekki örugglega borðað nóg í hádegismat og finn fyrir örlitlum andlegum sæluhroll þegar hún segist hafa týnt lyklunum sínum, áður en ég vind mér í að segja henni að hún verði að passa dótið sitt betur.

Henni virðist bara finnast þetta nokkuð fínt, ef ekki pínu gaman, svona að fá að vera unglingur aftur, 55 ára gömul.

Hasta luego, annars (í tilefni af spænskuprófs-RÚSTI), ég er farin á garðsölu.

12 Comments:

At 5:21 e.h., Blogger Ragnhildur Hólmgeirsdóttir said...

Svo það er þar sem þú heldur þig. Dæmigert. Annars er þetta geysilöng og skemmtileg færsla.

 
At 10:07 e.h., Blogger Sandra said...

geypiskemmtileg rétt er það

verður maður annað hvort að breytast í mömmu sína,eða andmömmu sína?
ef við förum út í hvað maður breytist í þá er ég hæstvirtur faðir minn, án efa.

 
At 2:08 e.h., Blogger Bastarður Víkinga said...

Strákar verða líka alltaf annaðhvort að pabba sínum eða andpabba sínum.

Svo er reyndar þriðji hópurinn líka sem getur ekki ákveðið sig hvort hann vill, svona eins og ég. Það er samt spurning hvort það telst sem sér hópur eða bara sem einhverskonar millibilsástand.

So the point is moot. This ain't a girl thing, 'tis a people thing.

 
At 9:37 e.h., Blogger Sandra said...

Merkilegt nokk, í titlinum segir; Mömmubrandarar og Ástralir
sem bendir nokkur veginn til þess að þú hafir ætlað að skrifa um ástralann, en síðan misst þig í mömmu-frásögnum og gleymt honum.
Þetta fellur undir vanrækslu á ástrala, og gífurlegri athygli til móður
australophobia materaliaque

 
At 10:55 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég vil byrja á að lýsa yfir óánægjuminni með skort á Áströlum í þessari bloggfærslu.

En svona almennt séð verð ég bara að teljast nokkuð ánægð.

Aldrei á mínum næstum 18 ára ferli sem manneskja hef ég heyrt mömmu þína blóta!! Hvert er heimurinn að fara??

 
At 11:51 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

þetta var allt með vilja gert, maður verður nú að halda ykkur á tánum...

Klara

 
At 12:20 f.h., Blogger Anna Margrét said...

Klara. Mamma þín er kúl. Hún er eina manneskjan sem ég þekki sem stoppar á miðri götu, til að taka plastpokann sem hún hefur keyrt dágóðan spöl með á dekkinu, af, heldur honum út frá sér með vanþóknunarsvip, svipast laumulega um og hendir honum svo á götuna og brennir í burtu. Mamma þín er skemmtileg.

Ég hefði samt ekkert á móti því að vera mamma mín. Hún er fyndin líka. Frekar það en andmamma mín...

 
At 7:49 f.h., Blogger Ragny said...

ekki verða ALLAR stelpur eins og mamma sín? :-S
*hrollur*

Mig langar hvorki að vera mamma mín né andmamma mín...
Það hlýtur að vera hægt að komast hjá þessu einhvern veginn.

Surely, there must be a way!

 
At 1:05 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég fór með pabba að kaupa ís áðan, keypti reyndar sjeik en þetta flokkast samt undir ísbíltúr.

 
At 9:40 e.h., Blogger Sigurlaug Elín said...

þú VERÐUR að sjá það sem ég skrifaði í ritgerðinni minni...þú færð flog. kristín jóns hinsvegar fær fullnægingu

 
At 5:18 f.h., Blogger María Rut said...

hmm... langar ekki að verða vitni af yfirlýsingu seinasta ræðumans.

 
At 12:09 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Framsókn er að missa fylgi skv. nýjustu tölum.
Þú þarft samt ekkert örvænta strax, það eru mörg atkvæði ótalin.

 

Skrifa ummæli

<< Home

|