þriðjudagur, júlí 18, 2006

Ef þú ert kvalin örgum pínslum
illra meina sífelldri nauð
og vondra manna mörgum klækjum
mildi guðs að þú ert ekki dauð.

Þá vappa skaltu' inn í Víðihlíð
Já Víðihlíð og Víðihlíð
og vera þar síðan alla tíð,
alla þína tíð.

Ef þú kúrir ein í horni
enginn þér sinnir þá græturðu lágt.
Og fáirðu matinn kaldan og klénan
og kjötið það sé bæði vont og hrátt.

Þá vappaðu inn í Víðihlíð
Já Víðihlíð og Víðihlíð
og vertu þar síðan alla tíð,
alla þína tíð.

Ef börnin í þig ónotum hreyta
æskirðu liðsinnis buguð af þraut.
Og ef bóndinn hann segir bless og er farinn
þá búið það tekur að vanta graut.

Þá vappaðu inn í Víðihlíð...

Ef enginn þér sýnir samúð neina
en sorgirnar hlaðast að fyrir því.
Og ef engin hræða til þín tekur
tillti né sýnir viðmót hlý.

Þá vappaðu inn í Víðihlíð...

Í Víðihlíð er veðurblíð
vondir kallar þeir sjást ekki þar.
Og ótal stúlkur stökkvandi til þín
stefna og færa þér gnótt matar.

Þá valhoppaðu inn í Víðihlíð.
Í Víðihlíð og Víðihlíð
Og vertu þar síðan alla tíð
alla þína tíð - alla þína tíð.

Þær votta þér samúð votum hvörmum
og vítur samþykkja' á pakkið illt - og spillt.
Og sýna þér góðvild í einu og öllu
og eyrun sperra þá græturðu milt - og stillt.


Já valhoppaðu inn í Víðihlíð
í Víðihlíð og Víðihlíð
Og vertu þar síðan alla tíð
alla þína tíð - :.:alla þína tíð:.:.


Ef einhver á þetta lag (það er með Megasi) þá gætir þú sent mér það á undirhundurinn@gmail.com.

Það er nauðsynlegt

10 Comments:

At 2:09 e.h., Blogger Bastarður Víkinga said...

Doddi kemur (enn og aftur) til bjargar.

Þvi eg rula.

 
At 2:27 e.h., Blogger Bastarður Víkinga said...

Ó. Hélt ég ætti það. My bad.

 
At 2:36 e.h., Blogger Bastarður Víkinga said...

(En ég get gefið þér knús.)

 
At 7:42 e.h., Blogger andri g said...

Ég hélt sko að þetta væri eitthvað ljóð sem þú varst að semja og var alveg ,,vá, sjitt hvað Klara er gott skáld". Síðan varð ég frekar svekktur að sjá að þetta væri eftir Megas en ekki þig. Pé-ess ertu búin að fá þúveisthvað frá þúveisthverjum?...eins gott!

 
At 9:03 e.h., Blogger Kittycat said...

hvað heitir það?

 
At 9:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég kom henni til bjargar ví. Sniðugt þetta mr e-mail hotmailið getur ekki verið með svona stór viðhengi. Vonandi gastu halað niður laginu áfallalaust.

 
At 6:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Where did you find it? Interesting read Norix integra armless chairs www evista com http://www.domainhosting9.info/Feb_18_power_ball_numbers.html fda approved permanent hair removal Florida laptop projector rental

 
At 1:37 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Wonderful and informative web site. I used information from that site its great. Shallow laptops Oem 2001 subaru impreza headlight Celebrex heartburn

 
At 11:34 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Keep up the good work » »

 
At 12:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Very cool design! Useful information. Go on! Jewelry party meriden handbag purse parties connecticut horse race betting types Neurontin and topomax neurontin and side effects plenaxis Free roulette clipart Moving companies san antonio backpacks for kids Keane merchant account

 

Skrifa ummæli

<< Home

|