mánudagur, júní 05, 2006

like mother like daughter like daughter

ég brenn í skinninu að skrifa annað mömmublogg. En það er víst úti núna, það stóð í birtu og það sem stendur í birtu er lögmál, eins og við öll vitum. Þess vegna ætla ég að skrifa ömmublogg:

Amma var sumsé að hjálpa einhverjum manni að girða sig (ójá, ég veit) og var eitthvað að basla við þetta...
maðurinn: áttu í einhverjum erfiðleikum með þetta?
Amma (sem, eins og mamma, ruglast oft á kyni orða, sérstaklega í fornöfnum): já, hann er stífur á þér í dag

... hún var sumsé að tala um beltið

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, af því að ég er á mission að skrifa léleg, stutt, prump blogg til að dissa Önnu Margréti. Gæti samt bætt öðru við í kvöld, af því að ég þarf að vakna hálffjögur og því tekur það því eiginlega varla að fara að sofa. Ég er að fara til portúgal, með það að markmiði að deyja úr astmakasti á einhverjum tindi á Madeira. Ég tala samt bara svona af því að ég kann bara að vera bitur og svartsýn, en einhversstaðar innst inni held ég að ég hlakki bara frekar mikið til.

p.s. ef þið viljið póstkort verðið þið að kommenta heimilisfanginu ykkar... núna! (endilega gerið það, ég er trylltur póstkortanörd)

5 Comments:

At 10:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hahahhahahahahahhahahahahhaha Amma Klara er stórkosleg!
Annars...
Ásland 8
270 Mosó ;)

 
At 10:42 e.h., Blogger Anna Margrét said...

Amma Klara er best :)
Þetta var ekki prump, þetta var góð færsla.
Þú veist mitt, ást.

 
At 2:28 e.h., Blogger Ragnhildur Hólmgeirsdóttir said...

Hvaða, hvaða, þetta var mjög skemmtilegt.
Og ég á heima á framnesvegi 46.

 
At 1:52 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

mig lááááángar svo í póstkort ljós!!

MIðstræti 10;)

skemmtu þér vel og ég hlakka til að hitta þig þegar þú kemur heim!

 
At 3:09 f.h., Blogger birta said...

"það stóð í birtu og það sem stendur í birtu er lögmál, eins og við öll vitum."

mikið rétt klara, mikið rétt.

einnig má túlka þetta á annan hátt, það stóð í birtu (as in: aðskotahlutur í hálsi). þá væri ég kannski dauð núna. og það væri sko sorglegt :(

have fun in the útland, partner

 

Skrifa ummæli

<< Home

|