netkaffihúsadrusla
Ég er á kaffi hljómalind, gagngert til að komast á netið. Svo er ég bara að blogspot og msn tussast og kemst ekkert áfram.
Það er samt miklu, miklu skemmtilegra að blogspot og msn tussast á eigin tölvu.
Vá, ég man ekki einu sinni hvað ég ætlaði að blogga um.
annars ef það er einhver sem getur sagt mér afhverju allt indexið á bæði blogger og mr emailinu mínu er á fokking víetnömsku mun sá hinn sami eiga miklar þakkir skildar
Hendi að lokum inn mynd af bandarískum busastrákum.
5 Comments:
Og svo kallarðu mig pervert!
Anna er sumsé ég, Isis...:p
Systir mín setti allt á hollensku í mömmu tölvu, líka ef maður fór á msn.com....það var ágætt að fá ástæðu til að vera reiður við hana en það var ekki ágætt að geta ekki breytt þessu.
aaaa farðu í sýn í safari og skoða kóða og breyttu kóðanum !!! úúúú Magnea powerbookari
Ohh það er svo gaman að gúgla ;) Busastrákarnir eru að gera góða hluti! Meira svona takk!
Skrifa ummæli
<< Home