laugardagur, desember 17, 2005

UPPBOÐ

Til að styrkja fíkn mína í að gera vel við alla og eyða umfram efni í jólapakka handa vinum og fjölskyldu hef ég ákveðið að halda uppboð á eigum mínum... án gríns, ef þið vitið af einhverju í fórum mínum sem þið viljið falast eftir, þá sakar ekki að gera tilboð (ég lofa engu um að skiljast við vínylplötur og aðrar slíkar gersemar en hver veit...). Hafið einnig samband ef þið viljið að ég þvoi bílinn ykkar, passi systkini ykkar eða pússi skóna ykkar.

Ég er á barmi örvæntingar

9 Comments:

At 11:19 e.h., Blogger Drekafluga said...

Úr hvaða kvikmynd er þessi mynd aftur? Man það ekki. Amélie? Held það. Kannast allavega við mikið við hana. Júbb, ok. Þetta er þaðan.

 
At 12:13 f.h., Blogger Sandra said...

ég skal kaupa af þér grænu úlpuna þína, og kannski einhverjar plötur!
eða geisladiska jafnvel.... svo hef ég alltaf girnst grænu heimatilbúnu töskuna þína og rrauðu thai-buxurnar!

Sandra Gísladóttir

 
At 1:13 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

hmm...ég er ennþá með appelsínugulu úlpuna sem ég átti að láta þig fá fra sigrunu þegar að hun fór út....kannski þú getir bara selt þá söndru þessa grænu og orðið appelsínugul hehe

 
At 3:25 f.h., Blogger Þorsteinn said...

On the bosom of despair! A bad place to be.

 
At 5:38 e.h., Blogger Ragnhildur Hólmgeirsdóttir said...

Bosom? Á það ekki að vera bottom? Hitt þykir mér heldur djarft.
Og Klara mín, ef þú ætlar virkilega að selja eigur þínar til að eiga fyrir jólagjöfum, þá fæ ég samviskubit og neita að taka við gjöf frá þér.

 
At 8:24 e.h., Blogger Klara said...

hahaha, of seint, Ragnhildur mín, ég hef þegar keypt lítilræði handa þér ;)

 
At 11:23 e.h., Blogger Sandra said...

fæ ég þá grænu úlpuna?

 
At 2:18 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég býð 1000 kall fyrir bol ef þú skrifar svona dót framan á hann (sé sjálf fyrir bolnum)

 
At 12:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég skal kaupa lokk úr hári þínu

 

Skrifa ummæli

<< Home

|