laugardagur, apríl 12, 2003

http://www.antra.dk/xiaoxiao3.swf
Hrein og klár snilld

|

Á jákvæðu hliðina:
1: Það er gegt gott veður
And that is pretty much it.....
Á neikvæðu hliðina:
1. Samræmd próf eru á leiðinni
2: Það er ENGINN skemmtilegur á MSN, að minnsta kosti enginn sem nennir að tala við mig....
3: Ég neyðist til að verja ÖLLUM deginum í að læra EÐLISFRÆÐI sem er LEIÐINLEG
4: Það nennir enginn með mér á skauta......
5: Herbergið mitt er í rúst
6: Mamma er á "ábyrgu móðurflippi"
7: Ég fékk ekki að sofa út í dag og fæ það heldur ekki á morgun
Ef litið er til tölfræða þá má draga þá ályktun að þetta sé fremur neikvæður dagur. Samt er ég í góðu skapi!!!! Skil einfaldlega ekki hvað er að mér!

|

föstudagur, apríl 11, 2003

í dag er föstudagur! Ég er svöng því ég borðaði engan morgunmat. En þetta stendur allt til bóta, því ég er nefnilega með peninga í vasanum. Annars er lítið af mér að frétta nema að það er að koma PÁSKAFRÍ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! og það er mjög jákvætt. Hinsvegar, í neikvæðari kantinum, var mamma á foreldrafundi í gær. Ógn og skelfing! Hún kom hem yfirfull af yndislegum hugmyndum um hvernig foreldri á að hegða sér, til dæmis: foreldri skal ávallt sitja yfir barni sínu, alla tíma sólarhrings, og nöldra í því um hvernig viðkomandi vesaling er best að læra! Hún kom heim eins og hún hefði fengið hina mestu uppljómun, og sagðist vilja taka virkari þátt í námi mínu! Ég er öskureið út í Bessí og Mörtu! Þær stóðu fyrir þessu öllu! Með glærur og allt saman sem þær létu foreldrana skrifa upp af! Mér hefur ekki enn tekist að koma móður minni í skilning um að ég er eldri en 10 ára, og get því upp að vissu marki tekið ábyrgð á eigin námi. Æ neinei, ég er að fara í páskafrí og ætla að vera ánægð (fyrir utan það að allt fríið fer í það að nördast yfir bókum, þökk sé kennaraandskotunum)! Æi, þetta verður bráðum búið

|

fimmtudagur, apríl 10, 2003

Mér leiðist. Mjög mikið. Svo mikið reyndar að ég er alvarlega að pæla í að horfa á leiðarljós eða jafnvel eitthvað á stöð tvö ~ ruglað! Nei annars, ég leggst ekki svo lágt. Hvað á ég að geeeeeera????? Ég á víst að vera skapandi strumpurinn! Samt get ég ekki fundið upp á neinu skapandi að gera! Fuff, strumpurinn minn stendur sig ekki! Ætli hann sé ekki bara að hvíla sig svo ég geti verið uppá mitt hressasta í kvöld í sundi og öskrað sem allra mest í rennibrautinni :-P
Ég hef ákveðið að segja sem fæstum frá þessu bloggveseni mínu, sennilega af ótta við að fólk gæti komist að því hversu kexrugluð ég get verið. En.....ætli ég geti nú falið það mikið lengur hvort eð er....... Fólk verður bara að sætta sig við kexruglleikann minn því innst inni er strumpurinn minn ágætis náungi......

|

Minn innri strumpur


Find your inner Smurf!

|

Jæja
Aðeins að prufa þetta dótirí
Ekki það að ég haldi að eikker lesi þetta......

|