þriðjudagur, maí 30, 2006

Afstætt og svoleiðis

Við vorum að að fá internet upp í grafarholtið
allt í einu eru allar vegalengdir þúsund sinnum styttri
meira að segja til Sigurlaugar sem er á heimsenda

|

sunnudagur, maí 21, 2006

ch-ch-changes

Ef snjór í apríl merkir vonbrigði, hvað merkir þá snjór í lok maí?

Ég er flutt í Grafarholt, nánar tiltekið Þorláksgeisla. Mér finnst ennþá eins og ég sé bara í heimsókn, enda hef ég ekki búið annars staðar en á Bugðulæknum alla mína ævi, og spyr mömmu stundum hvort ég megi fara á klósettið, og sit voða pen á gamla sófanum mínum eins og ég eigi hann ekki lengur. Í gær pöntuðum við pizzu og ég mundi ekki hvað heimilisfangið mitt væri. Verst af öllu finnst mér þó að Amélie spólan mín er einhversstaðar ofan í kassa.

Annars er þetta bara nokkuð fínt, herbergið mitt er með svona "ég-laumast-til-að-reykja-á-kvöldin"-svölum (þó ég ætli ekki að gera það...) og parketi og fínerí. Verð reyndar að sætta mig við það að 40% af húsgögnunum mínum kemst ekki fyrir í því, en um leið og ég hef fundið Amélie spóluna mína er ég ánægð. Ætli ég sé ekki orðin heilaþvegin af feng shui/pollýönnustefnu móður minnar

|

laugardagur, maí 13, 2006

Mömmubrandarar og Ástralir



Eins og hefð gerir ráð fyrir:

Mamma: Hvar er helvítis ryksuguhausinn?
Ég: Hættu að segja svona ljótt
Mamma: Ég var ekkert að segja ljótt
Ég: Jú víst, þú segir ALLTAF ljótt
Mamma: Ég segi ekker alltaf ljótt. Silvía Nótt segir alltaf ljótt!
Ég: Haha, rím
Mamma: (muldrar) Fokking þetta og fokking hitt.

Takið vel eftir því þetta var síðasta mömmubloggið sem ég skrifa. Ég þarf virkilega að fara að einbeita mér að öðrum hugðarefnum.

Að því sögðu: Doddi skrifaði nýlega færslu um kvenkynið sem fékk mann næstum því til að vilja spila "Þér konur" á hæsta styrk, spreyja á mig svona ilmvatni og reykja mjóa ilmandi sígarettu úti á svölum á undirkjólnum einum klæða, smápiltum hverfisins til ánægju og yndisauka. Þar sem, hinsvegar, "Þér konur" vekur hjá mér óneitanlega velgju (reyndar stolti blandna, en samt velgju), ég fæ mjög svo órómantískt astmakast af sígarettureyk og lít ekki beint út eins og Brigitte Bardot (þótt Ólöf hafi nú einu sinni sagt það, líklega til að gleðja mig) á náttkjól þá ætla ég ekki að gera neitt af þessum hlutum, heldur eitthvað annað.

Nú er ég búin að segja ykkur hvað ég ætla ekki að gera. Eða svona, já... listinn gæti svosem alveg verið lengri. Líka listinn yfir það hvað ég ætti að vera að gera en er ekki að gera, hann er líka frekar langur, sem og listinn yfir það sem ég ætti ekki að gera, en enda sennilega með að gera. Þessi bloggfærsla er alveg örugglega á topp fimm yfir það, en próf fá mann til að vera asnalegur. Strákar líka, sérstaklega strákarnir sem fá mann til að blaðra út í eitt og sjá svo eftir hverju orði. Ég er með einn svoleiðis á sjóndeildarhringnum, en svo fer sem fer, kannski vakna ég einn morguninn með kúl, það er aldrei að vita.

(einn tveir og skrifa aftur í skipulagðri orðaröð:)

En aftur að kvenkyninu. Óháð öllu því sem Doddi talaði um í sambandi við kosti stelpna, þá er einn þáttur sem er óhrekjanlegur, og hann gleymdi að nefna: Allar stelpur breytast annaðhvort í a) mömmu sína eða b) hinn öfgann á skalanum eins konar andmömmusína. Bæði er jafnslæmt. Stelpur eru nefnilega klikkaðar upp til hópa, þær hætta ekkert að vera það þótt þær þykist hafa þroskast og eru komnar með bílpróf og eitthvað.

Þar sem mamma mín er af mörgum álitin vera í klikkaðri kantinum, jafnvel af "stelpu" að vera (hún kallar meindýraeyðinn í daglegu tali "the Mein Kampf") , hef ég því komið með krók móti bragði. Ég er ekki að verða eins og móðir mín, ónei! Ég er orðin að móður móður minnar. Húha! Nú skamma ég hana fyrir að blóta (sjá að ofan), spyr hana áhyggjufull hvort hún hafi ekki örugglega borðað nóg í hádegismat og finn fyrir örlitlum andlegum sæluhroll þegar hún segist hafa týnt lyklunum sínum, áður en ég vind mér í að segja henni að hún verði að passa dótið sitt betur.

Henni virðist bara finnast þetta nokkuð fínt, ef ekki pínu gaman, svona að fá að vera unglingur aftur, 55 ára gömul.

Hasta luego, annars (í tilefni af spænskuprófs-RÚSTI), ég er farin á garðsölu.

|